
Halldór Vilhelmsson
Óperusöngvarinn Halldór Vilhelmsson söng með fjölda kóra á sínum tíma, einsöng með flestum þeirra auk þess sem hann söng fjölmörg óperuhlutverk á söngferli sínum og sem einsöngvari á hundruðum tónleika af öllum stærðum og gerðum.
Halldór Kristinn Vilhelmsson bassasöngvari fæddist í Reykjavík vorið 1938 en ekki liggur fyrir hvort hann var af tónlistar- eða söngfólki kominn. Hann hóf að læra söng hjá Kristni Hallssyni og svo hjá Engel Lund, Ruth Magnússon og Guðmundi Jónssyni í Tónlistarskólanum í Reykjavík, síðar kenndi hann söng við sama skóla um tuttugu ára skeið á árunum 1982-2002. Þrátt fyrir að Halldór helgaði sig söngstörfum mest alla tíð var hann trésmiður að mennt og starfaði við það sjálfstætt alla tíð, það var svo þegar hann hafði minnkað við sig á söngsviðinu að hann hóf að sinna tengdu áhugamáli, tréskurði en hann þótti hagleiksmiður og smíðaði m.a. hljóðfærastatíf og hljóðfæri, t.a.m. langspil.
Söngferill Halldórs hófst fljótlega eftir að Pólýfónkórinn var stofnaður seint á sjötta áratugnum en með honum söng hann í áratugi og kynntist tilvonandi eiginkonu sinni Áslaugu Ólafsdóttur tónmenntakennara en með henni eignaðist hann þrjú börn sem öll helguðu sig söng, Hildigunni (sem einnig er þekktur fiðluleikari), Mörtu Guðrúnu og Sigurð (sem einnig er sellóleikari).
Með Pólýfónkórnum söng Halldór margoft einsöng á tónleikum sem og með öðrum kórum sem hann starfaði í, hér má nefna Einsöngvarakórinn, Selkórinn, Þjóðleikhúskórinn og Kór Vídalínskirkju en einnig kom hann oftsinnis fram sem einsöngvari með ýmsum öðrum kórum s.s. Söngsveitinni Fílharmóníu, Passíukórnum, Fóstbræðrum, Dómkirkjukórnum, Kór Háteigskirkju, Kór Laugarneskirkju og fleirum, bæði á venjulegum kórum sem og á stærri uppákomum eins og uppfærslum á kórverkum, hér má nefna Jóhannesarpassíuna og Mattheusarpassíuna (e. Bach) og Árstíðirnar og Sköpuna (e. Haydn) þar sem stórir kórar og kammer- og sinfóníuhljómsveitir komu einnig við sögu. Þá söng Halldór í ótal óperuuppfærslum, þeirri fyrstu árið 1962 þegar Musica Nova setti á svið Amal og vitringana en síðan í sýningum eins og Carmen, La traviata, Pagliacci, Cavalleria Rusticana, Töfraflautunni, La bohéme, Sígaunabaróninum og mörgum öðrum en hann var um tíma sé óperusöngvari sem hafði sungið einna flest hlutverk við Íslensku óperuna (og var reyndar einn af stofnendum hennar). Halldór átti einnig þátt í stofnun Hljómeykis, blönduðum kór sem enn starfar, og í sönghópnum Ensemble l‘homme arme.

Halldór Vilhelmsson
Halldór söng margoft einn á tónleikasviði með undirleikara sem og í útvarpssal og eftir því sem heimildir herma mun vera töluvert til af upptökum með söng hans í fórum Ríkisútvarpsins. Hann fór jafnframt í söngferðalög um landið ýmist einn á ferð eða með öðrum söngvurum. Þau hjónin tóku þátt í að gera Skálholtshátíð að veruleika og héldu þau m.a. utan um sumarsöngbúðir fyrir börn í Skálholti ásamt fleirum en Halldór söng einnig stundum á Skálholtshátíðinni.
Halldór vann ötullega að félagsmálum söngfólks, var t.d. í stjórn Íslensku óperunnar um tíma, stjórn óperudeildar Félags íslenskra leikara og í stjórn Samtaka um byggingu tónlistarhúss, hann var heiðraður fyrir framlag sitt til tónlistarmála á vegum FÍT árið 2003 og eftir andlát hans var listaverk eftir Rúnar Einarsson helgað minningu hans.
Halldór Vilhelmsson lést sumarið 2009 liðlega sjötíu og eins árs gamall.














































