Halldór Kristinsson (1950-)

Halldór Kristinsson

Tónlistarmaðurinn Halldór Kristinsson (oft nefndur Dóri í Tempó) var töluvert áberandi í íslenskri tónlist á sjöunda og áttunda áratugnum en hann var eins konar barnastjarna og síðar í einni af vinsælli hljómsveitum landsins, tríóinu Þremur á palli.

Halldór (fæddur 1950) kom fyrst fram á sjónarsviðið aðeins tólf ára gamall þegar hann söng lagið It‘s now or never á skemmtun í Langholtsskóla þar sem hann var við nám. Litlu síðar stofnaði hann í félagi við félaga sína í skólanum hljómsveit sem hlaut nafnið P.Ó. kvintett og síðar nafnið Tempó, þar var Halldór trommuleikari í byrjun en færði sig yfir á bassa og varð aðalsöngvari sveitarinnar, tvíburasystir hans Fríða var einnig upphaflega í sveitinni. Tempó varð landsfræg hljómsveit og meðlimir sveitarinnar um leið barnastjörnur þegar henni bauðst að hita upp fyrir bresku sveitina Swinging blue jeans árið 1964 og svo aftur fyrir hljómsveitina Kinks á tónleikum tveimur árum síðar. Sveitin var mynduð í bak og fyrir með bresku bítlasveitunum og Halldór varð þekktur sem Dóri í Tempó, athyglin leiddi til þess að sveitin starfaði um nokkurra ára skeið við nokkrar vinsældir.

Halldór fór eftir grunnskólanám í Verzlunarskóla Íslands þar sem hann söng m.a. með kór skólans og lék með skólahljómsveitinni, en hann söng einnig einsöng á tónleikum með kórnum. Hann var um tíma á unglingsárum sínum í söngnámi, fyrst hjá Stefáni Íslandi og síðan Guðrúnu Á. Símonar og þótti nokkuð efnilegur sem slíkur, og svo fór að hann var valinn til að syngja í söngleiknum Hárinu sem Leikfélag Kópavogs setti á svið en sú sýning vakti mikla athygli. Í framhaldinu lék hann einnig í söngleiknum Oklahoma í Þjóðleikhúsinu og síðar kabarettsýningunni Litlu flugunni sem tileinkuð var tónlist Sigfúsar Halldórssonar, jafnframt var Halldór í fleiri kórum s.s. Pólýfónkórnum og karlakór einnig.

Hljómsveitaferli Halldór var síður en svo lokið þegar Tempó lagði upp laupana haustið 1967 því hann átti eftir á næstu árum að leysa af sem bassaleikari í sveitum eins og Sextett Ólafs Gauks, Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar og Haukum, þar var hann að fylla skörð Vilhjálms Vilhjálmssonar og Rúnars Gunnarssonar og gat því einnig sungið ef svo bar undir.

Halldór með Þremur á palli

Það var svo haustið 1970 sem Halldór gekk til liðs við þjóðlagatríóið Þrjú á palli þegar Helgi R. Einarsson hætti í þeirri sveit til að einbeita sér að öðrum verkefnum en tríóið hafði þá þegar gefið út tvær plötur með erlendum þjóðlögum við texta Jónasar Árnasonar og naut mikilla vinsælda. Halldór var á þessum árum orðinn landsþekktur aðeins tvítugur og á næstu árum lék hann og söng með sveitinni inn á nokkrar vinsælar plötur og á leiksýningum og tónleikum bæði hérlendis og erlendis, þriðja plata tríósins með erlendum þjóðlögum (samnefnd sveitinni) leit dagsins ljós og svo önnur með íslenskum þjóðlögum (Icelandic folk songs) en í millitíðinni kom út jólaplatan Hátíð fer að höndum ein sem fyrir löngu hefur orðið sígild enda voru á henni þjóðlög sem ekki höfðu áður komið út á plötum. Enn ein plata með Þremur á palli kom svo út árið 1975 í samstarfi við Sólskinskórinn (Ný barnaljóð eftir Jónas Árnason) og ári síðar kom síðasta plata tríósins út, Tekið í blökkina og eftir það starfaði tríóið með hléum þar til það hætti árið 1980.
Árið 1973 hafði komið út fimm laga smáskífa á vegum SG-hljómplatna (sem einnig gaf út Þrjú á palli) undir titlinum Halldór Kristinsson syngur eigin lög við ljóð Jóhannesar úr Kötlum. Lögin á þeirri plötur voru ætluð börnum og nutu þau töluverðra vinsælda en hér má nefna lögin Lamb í grænu túni, Seppi sat á hól og Afi gamli á eina kú. Platan fékk ágæta dóma í Morgunblaðinu og söng Halldór m.a. lögin í Stundinni okkar. Þetta voru reyndar ekki frumraunir Halldórs sem lagahöfundur á plötu því fáeinum árum áður hafði komið út eftir hann á smáskífu með leikaranum Árna Tryggvasyni. Á síðari hluta áttunda áratugarins starfaði Þrjú á palli ekki samfleytt og fór því minna fyrir Halldóri á tónlistarsviðinu, hann hafði menntað sig sem smiður og starfaði við það en var þó aðeins viðloðandi Ferðaleikhúsið svokallaða og fór m.a. á vegum þess ásamt Garðari Cortes og fleirum til Bandaríkjanna til að kynna íslensk þjóðlög, þá tók hann þátt í ljóða- og söngdagskrá á vegum Þjóðleikhússins og Bítlatónlistarsýningu á Broadway og tók þátt í starfsemi Vísnavina þegar sá félagsskapur varð til.

Halldór kom fram á samkomum Vísnavina allt til ársins 1984 en fluttist þá erlendis og bjó og starfaði í Svíþjóð og Grænlandi áður en hann fluttist til Noregs árið 1987 þar sem hann var um tíma með eigið byggingafyrirtæki, þá var hann jafnframt um skeið framkvæmdastjóri fyrirtækis sem bar nafnið Needs communication og var mikið í Afríku á vegum þess. Í Svíþjóð hafði hann starfað í hljómsveit sem bar nafnið Max Palmers og gaf sú sveit út eina plötu en virðist ekki hafa komið mikið fram að öðru leyti þar eða í Noregi. Halldór hvarf því alveg af sjónarsviðinu hér heima en birtist stöku sinnum, t.d. þegar Þrjú á palli kom saman til að heiðra Jónas Árnason sjötugan og þegar Tempó kom saman á bekkjar-reunioni.

Halldór – Dóri í Tempó

Á tíunda áratugnum urðu Arnar og Rúnar synir Halldórs og þáverandi eiginkonu hans vel þekktar barnastjörnur í Noregi og komu út þrjár plötur með þeim bræðrum undir nafninu The Boys, Halldór hélt að einhverju leyti utan um það batterí og kom fjölskyldan eitthvað fram opinberlega öll saman. Og þegar The Boys komu hingað til Íslands sumarið 1993 til tónleikahalds tók Halldór einnig lagið fyrir áhorfendur.

Halldór hefur að mestu verið búsettur erlendis síðan árið 1984, hann var einnig í Danmörku um tólf ára skeið áður en hann flutti aftur til Noregs og hefur reyndar verið víðar síðustu árin. Hann mun hafa troðið upp á Íslandi síðast árið 2008 þegar hann og félagi hans úr Tempó, Þorgeir Ástvaldsson tóku lagið með hljómsveitinni Special á skemmtistaðnum Spot. Hann hefur oft í blaðaviðtölum sagt að hann vildi gefa meira af eigin tónlist út á plötum en af því hefur ekki orðið, áðurnefnd lög hans við ljóð Jóhannesar úr Kötlum hafa reyndar komið út á ýmsum safnplötum í gegnum tíðina og m.a.s. hefur lagið Lamb í grænu túni komið út með hljómsveitinni Texas Jesús. Þess má einnig geta að Halldór hefur sungið bakraddir á nokkrum plötum s.s. með Þorgeiri Ástvaldssyni, Ásgeiri Hvítaskáldi og Jakobi Frímanni Magnússyni.

Efni á plötum