
Reynir Jónasson
Sex afmælisbörn koma við sögu á þessum degi:
Reynir Jónasson harmonikkuleikari og organisti fagnar níutíu og eins árs afmæli sínu í dag. Reynir kemur upphaflega úr Suður-Þingeyjasýslu en tónlistarferillinn hófst þó á Akureyri um tvítugt. Þegar hann flutti suður lék hmeð sveitum eins og Hljómsveit Svavars Gests, Rómeó kvartettnum og Tríói Trausta Thorberg en síðar hlaut hann tónlistarskólastjóra- og organistastöðu á Húsavík þar sem hann bjó um tíma. Eftir að hann flutti aftur suður starfaði hann sem organisti, kórstjórnandi og tónlistarkennari víða um höfuðborgarsvæðið auk þess að leika með ýmsum hljómsveitum. Eftir Reyni liggja nokkrar sólóplötur.
Eiður Arnarsson bassaleikari frá Vestmannaeyjum er fimmtíu og sjö ára gamall í dag. Eiður er auðvitað þekktastur sem bassaleikari Stjórnarinnar og Todmobile en hann hefur líka leikið með sveitum eins og Radíus, 7und, Þúsund andlitum, Afsakið, Tweety, Belfigor, Sniglabandinu og Kartöflumúsunum. Eiður hefur margsinnis staðið á sviðum söngvakeppna og leikið inn á plötur misþekktra tónlistarmanna. Hann gegndi stöðu útgáfustjóra hjá Senu um árabil og starfar í dag sem framkvæmdastjóri Félags hljómplötuframleiðenda.
Sigurbjartur Sturla Atlason, öllu þekktari undir nafninu Sturla Atlas þrjátíu og eins árs í dag. Sturla Atlas, sem var kjörinn bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2016, er með þekktari hip hop tónlistarmönnum landsins og hefur gefið út tónlist sjálfur og í félagi við aðra tónlistarmenn, en hann er einnig leikari og hefur komið víða við þar s.s. í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og á leik- og óperusviði.
Þá er Hjörleifur Valsson fiðluleikari fimmtíu og þriggja ára í dag. Hjörleifur hefur leikið á ófáum plötum listamanna, bæði í poppinu og þyngri tónlist. Þar má nefna plötur Regínu Óskar, Moniku Abendroth, Sniglabandsins, Ljótu hálfvitanna og Sprengjuhallarinnar en hann hefur einnig leikið sjálfur í hljómsveitum eins Balzamersveitinni Bardukha, Duo Landon og Litla lakkrísbandinu.
Sigurður Harðarson hjúkrunarfræðingur og aktivisti sem reyndar er öllu þekktari undir nafninu Siggi pönk er fimmtíu og sex ára gamall í dag. Siggi er eins og margir vita söngvari hljómsveitarinnar Forgarður helvítis sem þykir í þyngri kantinum en hann hefur einnig starfað með sveitum eins og Dys og Gjöll.
Að síðustu er hér nefnd Ester Jökulsdóttir mezzósópran söngkona sem er fjörutíu og níu ára gömul. Ester sem kemur upphaflega af Héraði söng m.a. með Blöndustrokkunum í Eiðaskóla en vakti fyrst almenna athygli þegar hún söng jólalagið Gleði um jólin árið 1997. Síðan þá hefur hún komið mjög víða við í tónlistinni, lærði söng og píanóleik og hefur margs konar stíla á valdi sínu s.s. gospel, blús og djass. Hún hefur m.a. sungið inn á plötur með Sólstrandargæjunum, Jónasi Sigurðssyni og Ritvélum framtíðarinnar, Meisturum dauðans, Halldóri Warén, Saints of boogienights og Á móti sól.
Vissir þú að breska sveitin Siouxsie and the Banshees hélt hér tónleika vorið 1983?














































