Afmælisbörn 5. október 2023

Drengurinn fengurinn

Fjögur tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu á þessum degi:

Selfyssingurinn Valur Arnarson fagnar stórafmæli en hann er fimmtugur í dag. Valur var söngvari, hljómborðsleikari og trommuleikari með fjölmörgum hljómsveitum á sínum yngri árum sem margar hverjar voru í þyngri kantinum, hér má nefna sveitir eins og Sauðfé á mjög undir högg að sækja í landi Reykjavíkur, Gormar og geimfluga, Johnny Kane and the Cains, Kósínus, Súper María Á, Elvis Pressplay and the heartbreakers, Skrýtnir, Woolly and the teenagers, Fussumsvei og Systir guðs.

Akureyringurinn Egill Logi Jónasson sem einnig er þekktur sem Drengurinn fengurinn er þrjátíu og fjögurra ára gamall á þessum degi. Þessi fjöllistamaður er afar afkastamikill tónlistarmaður og hefur sent frá sér ógrynni skífa frá árinu 2013 og er hvergi nærri hættur.

Kristinn Þeyr Magnússon (oftast kallaður Kikkó) er fimmtíu og tveggja ára í dag. Hann er frá Akureyri og hefur starfað sem söngvari með fjöldanum öllum af hljómsveitum, hér eru nefndar sveitir eins og Hausverk, Skurður, Drep, Sker og Hún andar en sumar þeirra hafa sent frá sér plötur.

Tvíburabróðir Kristins Þeys, raftónlistarmaðurinn Rúnar Þór Magnússon á eðli málsins samkvæmt einnig fimmtíu og tveggja ára afmæli en hann hefur starfað með sveitum eins og Daman og hérinn og Vindva mei en einnig sent frá sér fjölda sólóskífna í gegnum tíðina. Rúnar hefur búið erlendis um árabil.

Vissir þú að dr. Hallgrímur Helgason tónskáld átti hugmyndina að skammstöfuninni STEF þegar þau réttindasamtök voru stofnuð?