Afmælisbörn 15. október 2023

Bergljót Arnalds

Á þessum degi koma fimm afmælisbörn við sögu á skrá Glatkistunnar:

Fyrstan skal nefna Ísfirðinginn Baldur Geirmundsson sem er áttatíu og sex ára gamall í dag. Baldur sem leikur á ýmis hljóðfæri starfrækti á árum áður ýmsar sveitir undir eigin nafni, Hljómsveit Baldurs Geirmundssonar og BG kvintettinn voru dæmi um slíkar sveitir en frægust þeirra er án nokkurs vafa B.G. & Ingibjörg sem gaf út nokkrar plötur og hefur í raun starfað nánast fram á þennan dag. Baldur lék fyrir nokkrum árum á harmonikku á plötunni Harmonikan í leikskólum landsins.

Bergljót Arnalds rithöfundur, tónlistar- og leikkona heldur upp fimmtíu og fimm ára afmæli sitt í dag. Bergljót hefur m.a. gefið út plötuna (og bókina) um Stafakarlana þar sem hún söng um bókstafina en söng hennar er einnig að finna á fleiri plötum.

Flateyringurinn Önundur Hafsteinn Pálsson trommari og upptökumaður er fjörutíu og sex ára gamall á þessum degi. Fyrir utan að hafa annast trommuleik, upptökur og upptökustjórn á fjölda platna í hljóðverinu Tanknum hefur Önundur leikið á trommur með sveitum eins og Amadeus, Bleikum fílum, Fjórtán rauðum rollum, Hljómsveit Villa Valla, Hamskiptunum og UNO 31.

Árni Thorsteinsson söngvari og tónskáld átti afmæli á þessum degi. Árni fæddist í Reykjavík 1870, var efnilegur söngvari og nam söng í Kaupmannahöfn en var sjálfmenntaður í tónsmíðum sínum. Út kom plata árið 1970 þar sem Karlakór Reykjavíkur söng lög hans en lög hans hafa komið út á fleiri plötum, hann stjórnaði einnig kórum. Nokkur lög eftir Árna fundust fyrir fáeinum árum en hann lést 1962.

Rögnvaldur Sigurjónsson píanóleikari frá Eskifirði (f. 1918) átti einnig þennan afmælisdag en hann lést árið 2004. Rögnvaldur nam sína tónlist hér heima og síðan í New York en kom heim aftur að loknu námi og fékkst við kennslu auk tónleikahalds. Fjölmargar plötur komu út með píanóleik hans, bæði litlar og stórar, og hlaut hann margvíslegar viðurkenningar fyrir starf sitt í þágu tónlistarinnar. Þess má geta að Rögnvaldur keppti í sundknattleik á ólympíuleikunum í Berlín 1936.

Vissir þú að tvíburabræðurnir Arnþór og Gísli Helgasynir fóru hringinn í kringum landið með tónleikaferð aðeins fjórtán ára gamlir?