Haustfagnaður (1981)

Haustið 1981 fór hópur um landsbyggðina undir nafninu Haustfagnaður undir þeim formerkjum að skemmta lýðnum með skemmtana- og dansleikjahaldi. Hér voru á ferð Baldur Brjánsson töframaður, tvíburarnir Hörður og Haukur Harðarsynir sem sýndu bardagalistir og svo hljómsveitin Glæsir sem lék á dansleikjum á eftir.

Svo virðist sem fyrirhugaður túr um alla landsfjórðunga hafi ekki verið farinn nema að hluta til og ekki var ævintýrið endurtekið haustið eftir.