Afmælisbörn 3. nóvember 2023

Dr. Hallgrímur Helgason

Afmælisbörn Glatkistunnar eru tvö í dag:

Ólafur Þór Arnalds tónlistarmaður er þrjátíu og sjö ára gamall á þessum degi. Ólafur hefur að mestu leyti starfað sjálfstætt tónskáld og tónlistarmaður, gefið út fjöldann allan af plötum og hlotið fyrir þær viðurkenningar en hann hefur einnig leikið á trommur með sveitum eins og Mannamúl, Celestine, Fighting shit og I adapt svo fáeinar séu nefndar. Síðustu árin hefur hann m.a. starfrækt dúettinn Kiasmos og verið annar eigenda Öldu music.

Húnvetningurinn Sigurvald Ívar Helgason trommuleikari og hljóðmaður fagnar í dag fimmtíu og eins árs afmæli sínu. Sigurvald hefur trommað með sveitum eins og Langbrók, Flugunni, Hljómsveit hússins, Hressu húsflugunni, Kamp knox og Lexíu og jafnframt leikið inn á nokkrar plötur með hinum og þessum listamönnum.

Og að síðustu er hér nefndur tónlistarmaðurinn, tónskáldið og tónlistarfræðingurinn dr. Hallgrímur Helgason (1914-94). Hallgrímur sem var fyrstur Íslendinga til að bera doktorstitil í tónvísindum var í grunninn fiðluleikari en hljóðfærið náði aldrei almennilega að verða í forgrunni hjá honum þar sem tónsmíðar og fræðistörf urðu ofan á en bæði liggja eftir hann fjölmörg tónverk og fræðirit, Hallgrímur var jafnframt framarlega í flokki í félagsmálum tónlistarmanna.

Vissir þú að Buxnaskjónar sem upphaflega var stofnuð í Hrafnagilsskóla sendi frá sér þrjár skífur?