
Richard Scobie
Tveir tónlistarmenn koma við afmælissögu Glatkistunnar í dag:
Richard Scobie sem helst er þekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Rikshaw er sextíu og þriggja ára gamall. Scobie söng einnig með hljómsveitum eins og Spooky boogie, Beaverly brothers, The Boy brigade og Loðinni rottu. Hann gaf einnig út sólóefni á sínum tíma og hefur skotið upp kollinum bæði í Landslagskeppninni og Söngvakeppni Sjónvarpsins.
Kristinn Jón Arnarson bassaleikari fagnar stórafmæli en hann er fimmtugur í dag. Kristinn Jón er bassaleikari Soma sem gaf út plötuna Föl og gerði lagið Grandi Vogar II vinsælt árið 1997. Kristinn hefur einnig verið í sveitum eins og Systur guðs, Stolið, Kósínus, Skrýtnum, Sauðfé á mjög undir högg að sækja í landi Reykjavíkur og Slow montains.
Vissir þú að þegar upptökur fóru fram á plötunni Hattur og Fattur árið 1979 var höfundurinn Ólafur Haukur Símonarson eitthvað ósáttur við söng á laginu Allur á iði svo hann söng það bara sjálfur á plötunni.














































