Hljómsveit sem bar hið sérstaka nafn Helfró starfaði á norðvestanverðu landinu undir lok sjöunda áratugar liðinnar aldar, líklega í kringum 1968. Bræðurnir Rúnar gítarleikari og Jóhann bassaleikari Þórissynir voru meðal meðlima sveitarinnar og einnig gæti trommuleikarinn Skúli Einarsson hafa verið einn meðlima hennar, hann var í sveit með þessu nafni á einhverjum tímapunkti. Liðsmenn sveitarinnar voru allir á unglingsaldri.
Óskað er eftir frekari upplýsingum um Helfró, aðra meðlimi hennar, starfstíma og annað sem ætti heima í umfjöllun um sveitina.














































