Afmælisbörn 23. desember 2023

Haukur Hauksson

Þrír tónlistarmenn eru skráðir afmælisbörn hjá Glatkistunni í dag, Þorláksmessu:

Árni Blandon (Einarsson) tónlistarmaður, leikari, húsasmiður, sálfræðingur og bókmenntafræðingur er sjötíu og þriggja ára gamall í dag. Árni ásamt Kristínu Lilliendahl gaf út plötu árið 1975 undir nafninu Söngfuglarnir, sem naut feikilegra vinsælda, einkum lagið Ég skal mála allan heiminn, en áður hafði hann leikið á gítar í ýmsum hljómsveitum s.s. Tacton, Blússveit Hamrahlíðar, Dýrlingunum, Töturum og Bláa bandinu. Þá hefur hann komið við sögu á plötum með tónlist úr leikritum eins og Hatti og Fatti, Öskubusku og Gosa. Árni samdi lagið Dimmar rósir.

Haukur Hauksson söngvari fagnar stórafmæli í dag en hann er sextugur á þessum degi. Haukur var áberandi í íslenskri tónlist í kringum 1990, birtist þá í Landslaginu og undankeppni Eurovision auk þess að senda frá sér sólóplötuna Hvílík nótt. Hann söng jafnframt með hljómsveitum eins og Af lífi og sál, Sprakk, Belfigor, Stjórninni og Stjörnuliðinu.

Árni Björnsson tónskáld (f. 1905) hefði átt afmæli þennan dag en hann lést 1995. Árni var úr Kelduhverfinu, fékk snemma áhuga á orgelleik, kórstjórnun og tónsmíðum, og svo fór að hann fór til náms, fyrst innanlands og síðan utan, og lét draum sinn rætast. Þegar hann kom aftur til Íslands átti hann eftir að spila með nýstofnaðri Sinfóníuhljómsveit Íslands hér heima, auk danslagasveita, en aukinheldur kenndi hann tónlist ásamt því að semja. Líf Árna tók þó stakkaskiptum þegar hann varð fyrir líkamsárárs sumarið 1952 og varð nánast óvinnufær eftir það. Tónlist Árna hefur verið gefin út á plötum tileinkuðum honum sérstaklega, og eitthvað er að finna á öðrum plötum.

Vissir þú að söngkonan Bonnie Tyler gerði útgáfu af Bone symphony laginu It’s a jungle out there?