Afmælisbörn 31. desember 2023

Gísli Þór Gunnarsson

Eitt afmælisbarn kemur við sögu á þessum síðasta degi ársins:

Gísli Þór Gunnarsson trúbador (G.G. Gunn) er sextíu og fimm ára gamall í dag, Gísli er ef til vill ekki meðal þekktustu tónlistarmanna Íslands en eftir hann liggur þó fjöldi útgáfa í formi kassettna. Gísli starfaði um tíma sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi en hefur líklega lítið sinnt tónlistinni síðustu áratugina.

Vissir þú að eitt sinn starfaði kvennahljómsveit við Alþýðuskólann á Eiðum undir nafninu Gvendólínur?