
Böðvar Guðmundsson
Tvö afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag:
Böðvar Guðmundsson rithöfundur sem er þekktastur fyrir Vesturfarasögurnar Hýbýli vindanna og Lífsins tré, er áttatíu og fimm ára gamall í dag. Böðvar var virkur á vinstri arminum hér áður fyrr og kom þá oft fram sem trúbador þar sem hann flutti eigin lög og ljóð. Hann gaf jafnframt út tvær plötur á sínum tíma, fimm laga smáskífuna Þjóðhátíðarlög 1974 (1974) og breiðskífuna Það er engin þörf að kvarta (1981). Hann hefur einnig samið og þýtt fjölda söngtexta, m.a. fyrir leikhús og má þar nefna Emil í Kattholti, Kysstu mig Kata og Ronju ræningjadóttur.
Haukur Tómasson tónskáld er sextíu og fjögurra ára gamall á þessum degi. Haukur nam píanóleik og tónsmíðar í Evrópu og Bandaríkjunum og hefur unnið til ýmissa verðlauna fyrir samtíma tónlist sína hér heima og erlendis. Þá hefur tónlist hans komið út á fjölda platna, m.a. í samstarfi við Caput hópinn.
Vissir þú að Björn Björnsson úr Savanna tríóinu, Einar Júlíusson úr Pónik og Helena Eyjólfsdóttir úr Hljómsveit Ingimars Eydal voru systkinabörn?














































