
Haukur Þorsteinsson
Í dag eru tónlistartengd afmælisbörn Glatkistunnar fimm:
Mývetningurinn Stefán Jakobsson er fjörutíu og fjögurra ára gamall í dag. Stjarna hans hefur risið hátt á síðustu árum, bæði sem söngvari hljómsveitarinnar Dimmu en einnig almennt fyrir söngverkefni sín s.s. Föstudagslögin, þá hefur hann sent frá sér sólóplötu. Stefán sem er af miklum tónlistarættum, er og hefur verið í ýmsum öðrum hljómsveitum en Dimmu en má þar nefna sveitir eins og MaidenIced, Douglas Wilson, Alþingi, Dralon og Þingtak.
Bóas Hallgrímsson söngvari fagnar fjörutíu og fjögurra ára afmæli sínu á þessum degi. Bóas sem hefur aðallega sungið með hljómsveitum í harðari kantinum og í jaðargeiranum hefur starfað með sveitum eins og Spitsign, Vígspá, Reykjavík! og Porker, og sumar þeirra hafa einnig gefið út plötur.
Steinn Erlingsson baritón söngvari er áttatíu og fimm ára gamall í dag. Steinn sem kemur frá Keflavík varð fyrstur Suðurnesjamanna til að gefa út einsöngvaraplötu en reyndar benti fátt til þess að hann myndi verða söngvari því hann starfaði sem sjómaður lengi vel, og hóf ekki söngnám fyrr en hann var kominn vel á fertugsaldur.
Þá hefði Kristján Magnússon píanóleikari og ljósmyndari einnig átt afmæli þennan dag en hann lést árið 2003. Kristján (fæddur 1931) spilaði með fjölda danshljómsveita á sínum tíma, hann rak eigin sveitir um árabil (Hljómsveit Kristjáns Magnússonar, Tríó Kristjáns Magnússonar og KR-tríó) en lék einnig í sveitum eins og KK-sextett, Hljómsveit Björns R. Einarssonar og Trad kompaníinu. Kristján var sem fyrr segir ljósmyndari og tók m.a. ljósmyndirnar af Hljómum á fyrstu breiðskífu þeirrar sveitar.
Og að síðustu er hér nefndur tónlistarmaðurinn Haukur Þorsteinsson á Sauðárkróki (1932-1993) sem starfrækti hljómsveitir í heimabæ sínum um langt árabil og lék þar mestmegnis á harmonikku og saxófón en söng einnig því hann þótti liðtækur söngvari enda bróðir Erlu Þorsteins söngkonu, hann lék einnig með H.G. kvintettnum og Hljómsveit Sveins Ingasonar. Haukur var jafnframt virkur í djassklúbbi Sauðárkróks og reyndar einnig virkur í leiklistarlífinu og öðru félagsstarfi á Króknum.
Vissir þú að Hildigunnur Halldórsdóttir (hin eldri) samdi kvæðin við Foli foli fótalipri, Óskasteinar, Búálfur á bænum er og fleiri barnalög?














































