Afmælisbörn 22. janúar 2024

Sigurður Flosason

Fjölmargt tónlistarfólk kemur við sögu í liðnum Afmælisbörn dagsins í dag:

Erla Þorsteins söngkona (stúlkan með lævirkjaröddina) hefði átt afmæli í dag en hún lést 2022, hana þarf vart að kynna enda átti hún hvern stórsmellinn á fætur öðrum á sjötta áratug síðustu aldar sem margir hverjir hafa lifað til dagsins í dag. Söngferill hennar (sem að mestu var bundinn við Danmörku) var til þess að gera mjög stuttur en hún hætti að syngja 26 ára gömul til að sinna fjölskyldu og heimilislífi. Meðal laga sem Erla söng eru t.d. Þrek og tár, Litli tónlistarmaðurinn, Kata rokkar og Vagg og velta sem varð svo frægt að verða bannað í Ríkisútvarpinu á sínum tíma.

Helga Sigþórsdóttir viðskiptafræðingur og söngkona heldur upp á áttatíu og eins árs afmæli sitt í dag en hún söng með fjölmörgum hljómsveitum á árum áður á öldurhúsum borgarinnar og víðar. Helga söng t.a.m. með H.B. kvintettnum, Haukum, GÓP & Helgu, Astro og Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar djasspíanista, en hún var gift honum á sínum tíma.

Sigurður (Hjörtur) Flosason saxófónleikarinn góðkunni fagnar stórafmæli, hann er sextugur á þessum degi en hann hefur eins og kunnugt er gefið út fjöldann allan af plötum og starfað með hinu og þessu tónlistarfólki, leikið á plötum þeirra og starfað með óteljandi djasshljómsveitum og öðrum sveitum.

Margrét Kristín Blöndal (Magga Stína) tónlistarkona er fimmtíu og sex ára gömul í dag, hún hefur afrekað ýmislegt á sinni tónlistarævi s.s. sungið með hljómsveitum eins og Sýrupolkasveitinni Hringjum, Risaeðlunni (Reptile), Bikarmeisturunum, Jazzhljómsveit Konráðs Bé og Dvergunum sjö. Hún hefur einnig gefið út sólóplötur.

Og að síðustu er hér nefndur trommuleikarinn Friðrik Geirdal Júlíusson sem fagnar fimmtíu og fjögurra ára afmæli sínu á þessum degi. Friðrik hefur starfað í gegnum tíðina með ýmsum þekktum og óþekktum hljómsveitum eins og Spoon, Kirsuber, Saffó, Samsara, Skóbúð Imeldu Marcos, Mír og Mood svo nokkur dæmi séu nefnd en hefur einnig leikið inn á plötur annarra listamanna.

Vissir þú að Sigríður Eydís Gísladóttir sigraði Rímnaflæði 2014?