![](https://glatkistan.com/wp-content/uploads/2024/01/helga-johanna-ulfarsdottir.jpg?w=258&h=300)
Helga Jóhanna Úlfarsdóttir
Helga Jóhanna Úlfarsdóttir (f. 1976) söng á árunum 1995 til 98 með hljómsveit sem bar nafnið Gloss en sveitin vakti nokkra athygli og sendi m.a. frá sér efni til útvarpsspilunar. Eitt lag kom árið 1997 út í nafni Helgu sjálfrar á safnplötunni Lagasafnið 6, líklegt hlýtur að teljast að hljómsveit hennar hafi verið með henni á þeirri plötu en engar upplýsingar eru þ.a.l.
Svo virðist sem hún hafi lagt sönginn á hilluna fljótlega eftir þetta og snúið sér að allt öðrum málum.