Hljómsveit Bjarna Friðleifssonar (1939-44)

Litlar sem engar upplýsingar er að finna um Hljómsveit Bjarna Friðleifssonar en hún var starfrækt í samfélagi Vestur-Íslendinga í Vancouver í Kanada. Sveitin var starfandi að minnsta kosti á árunum 1939-44 og lék þá á samkomum Íslendinga á svæðinu en engar upplýsingar eru í heimildum hverjir skipuðu þessa sveit, hversu stór hún var eða hversu lengi hún starfaði.

Reyndar eru upplýsingar um Bjarna Friðleifsson afar takmarkaðar einnig, og t.a.m. er hann ekki skráður í Íslendingabók (undir því nafni).