Iceland Airwaves hefur nú birt fyrstu nöfnin sem koma fram á 25 ára afmælisútgáfu hátíðarinnar, sem fer fram dagana 7. – 9. nóvember 2024 í miðbæ Reykjavíkur. Hátíðin fagnar aldarfjórðungsafmæli með holskeflu af spennandi, nýju og framsæknu tónlistarfólki frá Íslandi og öllum heimshornum. Dagskráin í ár verður ein sú flottasta hingað til.
„Við erum ótrúlega stolt af því að fagna 25 ára afmæli Iceland Airwaves og 25 árum af því að eiga þátt í fyrstu skrefum margra hæfileikaríkustu hljómsveita heims,“ segir Ísleifur Þórhallsson, hátíðarstjóri Iceland Airwaves. „Í gegnum árin höfum við séð fjölmörg bönd ná heimsathygli í kjölfar þess að koma fram á Iceland Airwaves. Það er heiður á hverju ári að fá að koma með heitasta tónlistarfólk veraldar til Reykjavíkur og einnig að fá að deila okkar einstaka íslenska tónlistarsamfélagi með heiminum.“
Meðal þeirra sem kynnt eru að þessu sinni er Shygirl frá Suður-London sem er þekkt fyrir einstakt aldamótar klúbbapopp, hefur verið tilnefnd til Mercury-verðlaunanna 2023 og státar af lögum sem hafa verið gefin út í samstarfi við tónlistarfólk á borð við SOPHIE, Arca og FKA twigs. Lo-fi grunge sveitin bar italia er þegar búin að sanka að sér dyggum hópi aðdáenda. Japansk-skoska listakonan Saya Gray búsett í Toronto er þekkt fyrir framúrstefnulegan og tilraunahenndan hljóðheim. Iceland Airwaves ætlar að bjóða upp á heimsklassa raftónlist í ár og tilkynnir einnig í dag breska dúettinn Joy (Anonymous), sem og bandarísku synth-poppsveitina Magdalena Bay. Belgíska dans dúóið Charlotte Adigéry and Bolis Pupul munu leika raftónlistar list sína en þau eru þekkt fyrir að taka á málum samtímans. Einnig mun hústónlistarmúsíkantinn Anish Kumar leika fyrir dansi, en hann sem sækir innblástur víða að – allt frá Brendu Lee til hindí-kvikmyndatónlistar.
Iceland Airwaves fagnar að sjálfsögðu því besta sem íslensk tónlist hefur upp á bjóða og tilkynnir nokkra ástsæla íslenska listamenn. Þar á meðal eru eitt besta live band Íslands, Inspector Spacetime, hip-hop dúettinn Úlfur Úlfur sem hafa á sínum 15 árum þróað hljóðheim langt út fyrir hefðbundið rapp. Aðrar íslenskar hljómsveitir sem kynntar eru að þessu sinni eru Klemens Hannigan – að mestu þekktur fyrir störf sín sem hluti af hljómsveitinni HATARI, og nýstirnið Róshildur sem vann Grapevine verðlaun í ár sem nýliði ársins.
Eftirfarandi nöfn eru kynnt að þessu sinni: Anish Kumar (UK) | bar italia (UK) | Bolis Pupul (BE) | Charlotte Adigéry & Bolis Pupul (BE) | eee gee (DK) | freekind. (SL) | Inspector Spacetime (IS) | Joy (Anonymous) (UK) | K.óla (IS) | Klemens Hannigan (IS) | Loverman (BE) | lúpína (IS) | Magdalena Bay (US) | Mandy, Indiana (UK) | mary in the junkyard (UK) | Migluma (LT) | Múr (IS) | Opus Kink (UK) | Orbit (DE) | Róshildur (IS) | Saya Gray (CA) | Shygirl (UK) | UCHE YARA (AT) | Úlfur Úlfur (IS) | Une Misère (IS) | Vévaki (IS) | virgin orchestra (IS)
Iceland Airwaves bókar á hverju ári samansafn af hljómsveitum af jöfnu kynjahlutfalli og hefur í gegnum samstarf sitt við Keychange gert það síðan árið 2019. Jafnrétti kynjanna er mikilvægur hluti af því sem hátíðin stendur fyrir og það tónlistarsamfélag sem hátíðin endurspeglar. Iceland Airwaves var fyrsta tónlistarhátíð heims til að ná þessum árangri.
Miðar á Iceland Airwaves 2024 eru í boði á https://icelandairwaves.is/tickets/














































