
Hildigunnur Halldórsdóttir
Hildigunnur Halldórsdóttir (hin eldri) er ein þeirra „týndu“ kvenna sem auðgað hafa íslenska tónlistarsögu, í þessu tilfelli aðallega sem höfundur texta við þekkt barnalög en einnig sem lagahöfundur. Segja má að hún sé ættmóðir stórrar tónlistarfjölskyldu sem hefur mikið látið að sér kveða í íslensku tónlistarlífi síðustu áratugina en sá hópur hefur m.a. tekið sig til og gefið út safn söngtexta og -laga eftir Hildigunni í bókar- og plötuformi.
Hildigunnur Halldórsdóttir fæddist snemma árs 1912 í Reykjavík og bjó þar líkast til alla ævi. Upplýsingar um ævi hennar og störf eru af skornum skammti, hún var kvennaskólagengin og barðist fyrir réttindum kvenna alla tíð en ekki er ljóst hvort hún nam hljóðfæraleik eða hvenær hún samdi sín þekktustu ljóð og lög. Hildigunnur lést sumarið 1992, áttræð að aldri.
Þekktustu textar Hildigunnar eru án nokkurs vafa Foli foli fótalipri, Hér búálfur á bænum er og Óskasteinar (Fann ég á fjalli) en þau hafa verið sungin við flesta ef ekki alla leikskóla landsins og miklu víðar um árabil, síðast nefnda lagið hefur að líkindum komið út á plötum í tugum útgáfa og þar er ekkert endilega um að ræða plötur fyrir börn, hér má m.a. nefna plötur með flytjendum eins og Eddu Heiðrúnu Backman, Svanhildi Jakobsdóttur, Kór Víkurskóla, Villa Naglbít, Hafdísi Huld, Sverri Guðjónsson og Barnakór Varmárskóla svo aðeins fáein dæmi séu nefnd – þá má einnig geta rokksveita eins og Kælunnar miklu og þýsku þungarokkssveitina In Extremo. Hin lögin tvö (Foli foli fótalipri og Hér búálfur á bænum er) hafa einnig komið út á ógrynni platna. Fjölmörg önnur ljóð Hildigunnar hafa komið út á plötum og hér má nefna Tveir kettir, Kom englalið af himnum hátt, Lofið drottinn, Syngur sumarregn, Láttu nú ljósið þitt og Andvökunótt, með flytjendum eins og Hljómeyki, Barnakór Bústaðakirkju, Skólakór Garðabæjar, Hamrahlíðarkórnum og þannig mætti áfram telja. Hildigunnar samdi jafnframt lög en ljóð hennar eru þó mun þekktari.

Hildigunnur á yngri árum
Segja má að Hildigunnur Halldórsdóttir sé ættmóðir stórrar tónlistarfjölskyldu, ein dætra hennar er Guðfinna Dóra Ólafsdóttir kórstjórnandi og söngkona sem m.a. stjórnaði Skólakór Garðabæjar til margra ára – dætur Guðfinnu Dóru eru Hildigunnur söngkona og tónskáld, og Hallveig söngkona Rúnarsdætur. Önnur dóttir Hildigunnar er Áslaug Björg Ólafsdóttir tónmenntakennari ekkja Halldórs Vilhelmssonar óperusöngvara en börn þeirra eru Marta Guðrún söngkona, Hildigunnur (yngri) söngkona og fiðluleikari, og Sigurður söngvari og sellóleikari Halldórsbörn. Eiginmaður Mörtu Guðrúnar er Örn Magnússon píanóleikari og börn þeirra, Halldór Bjarki og Ásta Sigríður eru einnig tónlistarfólk þannig að tónlistin liggur vægast sagt víða í þessari fjölskyldu.
Vorið 2014 kom út á vegum afkomenda Hildigunnar söngvabók með safni söngtexta og laga sem Hildigunnur hafði samið um ævina með nótum og hljómasetningu, alls fjörutíu og sex lög, Bókinni, sem bar titilinn Óskasteinar – Myndskreytt söngvabók með nótum og bókstafshljómum, með textum eftir Hildigunni Halldórsdóttur, fylgdi geisladiskur með tuttugu og sjö þessara laga og ljóða í flutningi stórfjölskyldunnar en einnig var þar að finna fáein frumsamin lög við ljóð Hildigunnar. Myndskreytingarnar í bókinni annaðist Hjördís Inga Ólafsdóttir þriðja dóttir Hildigunnar, og sú eina sem lagði líklega ekki fyrir sig tónlist að einhverju leyti.














































