Afmælisbörn 23. mars 2024

Sigrún Stella

Afmælisbörn dagsins eru fjölmörg og eftirfarandi:

Guðrún Árný Karlsdóttir söngkona, píanóleikari og tónlistarkennari úr Hafnarfirði er fjörutíu og tveggja ára í dag. Guðrún Árný sem hefur sungið frá blautu barnsbeini vakti fyrst athygli þegar hún sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna 1999 og í framhaldinu söng hún í ýmsum sýningum á Hótel Íslandi og víðar. Hún hefur verið áberandi í sönglagakeppnum eins og undankeppni Eurovision, Jólalagakeppni Rásar tvö og Landslaginu auk þess sem hún var ein Frostrósa, þá hefur hún verið áberandi á svokölluðum sing along uppákomum. Guðrún Árný hefur einnig gefið út sólóplötu, gefið út jólaplötu í félagi við aðra söngvara og sungið á plötum fjölmargra annarra listamanna.

(Valdimar) Ómar Valdimarsson sem lengi skrifaði um popptónlist í blöð er sjötíu og fjögurra ára gamall í dag. Ómar var framarlega í þjóðlagatónlistarvakningunni um 1970, starfaði þá með Nútímabörnum og var í forsvari fyrir þjóðlagaklúbbinn Vikivaka um svipað leyti. Hann sendi frá sér tveggja laga plötu undir nafninu Umbi Roy og starfaði um tíma sem umboðsmaður tónlistarmanna, auk þess að starfa sem blaðmaður ritaði hann bókina Sögu Hljómar sem var fyrst sinnar tegundar hérlendis.

Eggert Pálsson slagverksleikari er sextíu og fjögurra ára gamall í dag. Eggert sem nam fræði sín m.a. í Austurríki hefur leikið með ýmsum tegundum hljómsveita s.s. Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur, Keltum, Pjetri & úlfunum og Caput en hefur aukinheldur leikið á ógrynni platna annarra tónlistarmanna eins og Páls Óskars, Thin Jim, Kimono, Pólýfónkórnum og fjölda annarra.

Þá er Álfrún Helga Örnólfsdóttir leik- og söngkona fjörutíu og þriggja ára gömul í dag. Hún hefur komið við sögu á fjölda platna tengdum leikhúsinu s.s. með tónlist úr leikritum eins og Fame, Abbababb, Litlu hryllingsbúðinni, Dísu ljósálfi, Gretti og Grease en hún hefur jafnframt einnig sungið á plötum annars tónlistarfólks, þar má nefna plötur Hafdísar Huldar og Margrétar Örnólfsdóttur (systur Álfrúnar).

Einnig á söngkonan Ingibjörg Smith (Stefánsdóttir) afmæli á þessum degi en hún er hvorki meira né minna en níutíu og fimm ára gömul. Ingibjörg, sem mest alla tíð hefur alið manninn í Bandaríkjunum, söng sig inn í hjörtu landsmanna með lögum eins og Nú liggur vel á mér, Oft spurði ég mömmu (Que sera sera) og Við gengum tvö, auk fleiri laga en þau hafa komið út á fjölmörgum safnplötum í gegnum tíðina.

Og að lokum er hér nefnd tónlistarkonan Sigrún Stella Haraldsdóttir (Sigrún Stella Bessason) en hún fagnar í dag fjörutíu og fimm ára afmæli sínu. Sigrún Stella hefur ekki verið áberandi hér á landi en hún er fædd í Kanada og býr þar í dag (eftir að hafa búið hér á Íslandi sem barn og unglingur), hún hefur m.a. gefið út sólóplötur og unnið kvikmyndatónlist svo dæmi séu nefnd og hefur komið til Íslands til að leika á Iceland Airwaves.

Vissir þú að hljóðfæraverslunin Rín var stofnuð árið 1954?