
Merki Hljóðmúrsins
Margt er á huldu varðandi fyrirtæki sem bar nafnið Hljóðmúrinn en um var að ræða hljóðver, umboðsskrifstofu og útgáfufyrirtæki, auk þess sem það hafði með umboðssölu hljóðfæra, tónlistarkennslu og tækjaleigu að gera líka.
Hljóðmúrinn var líklega settur á stofn um haustið 1990 en eigandi þess var Jóhannes Pétur Davíðsson gullsmiður. Svo virðist sem hann hafi byrjað með umboðsmennsku fyrir hljómsveitir og trúbadora og á sama tíma boðið upp á kennslu á gítar, síðar bættust einnig við bassa- og trommukennsla. Þá var hann einnig búinn tækjum til að hljóðrita tónlist og annað efni og mun hafa sérhæft sig í gerð útvarpsauglýsinga, stefjagerð og annað tengt ljósvakamiðlum. Í kringum jól og áramót bauð hann einnig upp á heimsóknir jólasveina sem hann hafði á skrá.
Jóhannes gaf út tvo titla undir merkjum Hljóðmúrsins af því er virðist, annars vegar kassettu með lesnum ævintýrum undir titlinum Ævintýraland (1991), og svo geisladiskurinn Loksins… með Baunagrasinu (1993), sem var einmitt listamannsnafn Jóhannesar.
Hljóðmúrinn var fyrst til húsa í Sigtúni 7 en síðar um tíma í Dalshrauni 14 í Hafnarfirði og Ármúla 19, þar sem Jóhannes starfrækti einnig tækjaleigu og auglýsti reyndar æfingahúsnæði til leigu, og um haustið 1993 opnaði hann svo hljóðfæraverslun með notuð hljóðfæri að Hverfisgötu 82 undir merkjum Hljóðmúrsins.
Hljóðmúrinn starfaði til ársins 1994 eftir því sem best verður komist.














































