Afmælisbörn 26. júní 2024

Siggi Björns

Í dag eru tvö afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:

Stefán Hilmarsson söngvari á afmæli í dag en hann er fimmtíu og átta ára gamall. Stefán kom fyrst fram með hljómsveitum eins og Bjargvættinum Laufeyju, Bóas, Tvöfalda bítinu og Reðr áður en hann steig á stokk með Sniglabandinu með lagið Jólahjól. Í kjölfarið fékk hann fjölmörg verkefni en þekktastur varð hann þó fyrir framlag sitt með Sálinni hans Jóns míns. Pláhnetan, Ullarhattarnir og Milljónamæringarnir eru síðan meðal hliðarverkefna Stefán en hann hefur einnig átt farsælan sólóferil, gefið út fjölmargar sólóplötur og plötur í samstarfi við aðra s.s. Eyjólf Kristjánsson og fleiri en þeir félagar fóru einmitt sem fulltrúar Íslands í Eurovision 1995, það var þá í annað skiptið sem Stefán fór í Eurovision en hann fór einnig 1988.

Flateyringurinn Siggi Björns (Sigurður Björnsson) trúbador á einnig afmæli á þessum degi en hann er sextíu og níu ára gamall. Siggi hefur frá árinu 1991 sent frá sér fjöldann allan af sólóplötum, ýmist í formi geisladiska og kassettna en fyrst heyrðist til hans á plötu á safnplötunni Vestan vindar (1989). Siggi hefur spilað með fjölda hljómsveita hér á landi sem annars staðar en hljómsveitin Æfing er líkleg þeirra þekktust, hann hefur búið víða um lönd en kemur reglulega heim til Íslands til að spila.

Vissir þú að eitt sinn starfaði hljómsveit í Menntaskólanum á Laugarvatni undir nafninu Frostaveturinn mikli 1918?