Guðmundur Eiríksson var við tónlistarnám í Kaupmannahöfn um nokkurra ára skeið á níunda áratugnum og var á þeim tíma virkur í samfélagi Íslendinga í Danmörku. Hann kom fram á ýmsum samkomum og skemmtunum Íslendingafélagsins í borginni og starfrækti einnig hljómsveitir, sem léku djass og almenna danstónlist.
Ein þessara hljómsveita, sem lék margoft á dansleikjum Íslendingafélagsins, gekk ýmist undir nafninu Hljómsveit Guðmundar Eiríkssonar eða Íslenska danshljómsveitin og hét reyndar einnig Nordrock þegar sveitin lék fyrir danska áhorfendur, hún gæti reyndar hafa gengið undir fleiri nöfnum.
Tiltækar heimildir eru fyrir því að hljómsveit Guðmundar hafi starfað á árunum 1985 til 89 en líklegt hlýtur að teljast að hún hafi tekið fyrr til starfa því Guðmundur var virkur í tónlistarstarfinu ytra allt frá 1981. Hljómsveitina skipuðu auk Guðmundar sem lék á hljómborð þeir Ólafur Sigurðsson trommuleikari, Svein Arve Hovland gítarleikari og Tómas R. Einarsson bassaleikari en fleiri bassaleikarar áttu síðar eftir að leika með sveitinni, Ole Rasmussen og Gunnar Bernburg að minnsta kosti og e.t.v. fleiri. Óttar Felix Hauksson tók stundum lagið með sveitinni en ekki liggja fyrir upplýsingar um fleiri sem komu við sögu hennar.
Hljómsveit Guðmundar Eiríkssonar starfaði líklega til 1989.














































