Afmælisbörn 1. júlí 2024

Hreimur Örn Heimisson

Fimm afmælisbörn eru á lista Glatkistunnar í dag:

Fyrstan skal nefna Hreim Örn Heimisson söngvara, eða bara Hreim í Landi og sonum en hann er fjörutíu og sex ára gamall í dag. Hreimur söng og spilaði með nokkrum hljómsveitum áður en Land og synir komu til sögunnar, þar má nefna Föroingabandið, Sexappeal, Eins og hinir, Richter og nú síðast Made in sveitin. Hreimur hefur einnig gefið út sólóefni, tekið þátt í lokakeppni Eurovision með Vinum Sjonna, samið og flutt þjóðhátíðarlög og unnið við ýmis tónlistarverkefni með hinum og þessum.

Ásgeir Trausti (Einarsson) á afmæli í dag en hann er þrjátíu og tveggja ára gamall. Ásgeir, sem er ein helsta vonarstjarna Íslands í tónlistargeiranum í dag, sendi frá sér plötuna Dýrð í dauðaþögn árið 2012 sem sló í gegn og seldist í bílförmum, hún var síðan gefin út fyrir erlendan markað 2013 og hét þá In the silence. Önnur plata, Afterglow kom út 2017. Ásgeir hefur jafnframt leikið með hljómsveitum eins og Wildberry, Lovely lion og Uniimog.

Símon í Hól eða Símon Johnsen Þórðarson hefði einnig átt afmæli á þessum degi en hann fæddist 1888. Símon var liðtækur söngvari hér á árum áður, lærði í Þýskalandi og Danmörku en starfaði fyrst og fremst sem lögfræðingur. Þess má geta að hann varð fyrstur Íslendinga til að syngja í útvarpi ásamt Árna Jónssyni frá Múla. Símon var faðir Guðrúnar Á. Símonar, hann lést 1934.

Tónlistarkonan Alla Borgþórs eða Aðalheiður Borgþórsdóttir frá Seyðisfirði á sextíu og sex ára afmæli í dag. Alla hefur gefið út sólóefni, starfað með hljómsveitum eins og Lólu, Stemmu og Þáþrá, stjórnað kórum og komið að ýmsum tónlistartengdum verkefnum einkum austanlands, hún hefur jafnframt sungið inn á nokkrar plötur s.s. með Big nós band, Heitum pylsum og Hljómsveit Friðjóns Jóhannssonar.

Og þá er hér að síðustu nefndur tónlistarmaðurinn Sváfnir Sigurðarson úr Kópavogi en hann er fimmtíu og fimm ára gamall í dag. Sváfnir hefur starfað með ýmsum hljómsveitum í gegnum tíðina s.s. Bandi nútímans, Antarah, Kolum, Nafnlausu hljómsveitinni, Mönnum ársins, Just now, Vegagerðinni og T-Vertigo en hefur jafnframt sent frá sér frumsamið sólóefni á síðustu árum, sem hefur notið vinsælda.

Vissir þú að fyrsta íslenska breiðskífan kom út árið 1954 og var með Gísla Magnússyni píanóleikara?