Á leiðinni yfir Arnarhól

Á leiðinni yfir Arnarhól
(Lag / texti: erlent lag / Jónas Árnason)

Einn fagran löngu liðinn dag
sá ég stúlku á köflóttum kjól
með granna leggi og glóbjart hár
á leiðinni yfir Arnarhól.

Hún á mig leit eitt andartak
og öll tilveran sindraði af sól
og hjartað í mér hófst á flug
á leiðinni yfir Arnarhól.

Á mörgum skipum hef ég síðan siglt
í gegnum hafsins hark og skark
og sit nú yfirgefinn einn á bekk
í New York City Central Park.

Og hún er enn í huga mér
þessi stúlka á köflóttum kjól
sem á mig leit eitt andartak
á leiðinni yfir Arnarhól.

[á plötunni Út í vorið og Signý – Öll tilveran sindraði af sól]