Blái borðinn (Þjóðhátíðarlag 1936)

Blái borðinn (Þjóðhátíðarlag 1936)
(Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Árni úr Eyjum (Árni Guðmundsson))

Fjörefnaríkur Blái borðinn
betri‘ en nokkurt smjör,
útlitið bætir og æskuna kætir,
eykur hreysti og fjör.

Ástin er varla örugg til lengdar,
ölið er freyðandi tál
en víst þó að vítamínin
verma hug og sál.

Gott er ölið,
gleymist bölið,
glaðværðin er býsna mikil orðin
og ég sjálfur
orðinn hálfur
en alltaf er hann bestur Blái borðinn.

Söngurinn, ástin og ölið
örva og kæta sál.
Í þúsundatali við þjórum
þjóðhátíðarskál.

Gott er ölið,
gleymist bölið,
glaðværðin er býsna mikil orðin
og ég sjálfur
orðinn hálfur
en alltaf er hann bestur Blái borðinn.

[á plötunni Tríó Glóðir – Bjartar vonir]