Dagur og nótt í Dalnum (Þjóðhátíðarlag 1941)

Dagur og nótt í Dalnum (Þjóðhátíðarlag 1941)
(Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Árni úr Eyjum (Árni Guðmundsson)

Ljómar sumarsól
á sæinn björt og heit,
vermir byggð og ból
og blessar þennan reit.

Kveða ljúflingslag
öll loftsins börnin fríð,
­þennan dýrðdag
vér dáum alla tíð.

Og seinna, þegar dagsins birta dvín
um dalinn allan ljósadýrðin skín.

Eins og álfahöll
við ævintýrasæ,
gnæfa fögur fjöll
með furðulegum blæ.

Glöð við strengjaslátt
um stjörnubjarta nótt,
söng vorn hefjum hátt.
­Vor hátíð endar skjótt.

[engar upplýsingar um lagið á plötum]