Dátt er blessað lognið
(Lag / texti: erlent lag / Jónas Árnason)
Ég held það leiki varla
neinn vafi á því
að nú er vorið komið
með kurt og pí.
Það heilsar blítt að gömlum
og góðum sið.
Og dátt er blessað lognið
um lágnættið.
Í túni sefur kýrin
og kálfurinn.
Í gili sefur krummi
með gogginn sinn.
Í lautu sefur tófan
með loðið skinn.
Í rúmi sefur barnið
með rjóða kinn.
Í fjalli sefur örninn
á efstu brún.
Í hólma sefur æður
í æðardún.
Í skógi sefur þröstur
með þreyttan væng.
Og heima sefur barnið
með hlýja sæng.
Á priki sefur haninn með hanastél.
Á steini sefur krían
á Kríumel.
Í haga sefur folinn
og hann er grár.
Og góða barnið sefur
með glóbjart hár.
Í fjöru sefur mávur
við fjöruborð.
Í hylnum sefur lontan
með lítinn sporð.
Á þúfu sefur spói
í Spóamó.
Á kodda sefur barnið
í kyrrð og ró.
[m.a. á plötunni Þrjú á palli ásamt Sólskinskórnum – Ný barnaljóð Jónasar Árnasonar]














































