Ég elska flugur

Ég elska flugur
(Lag / texti: Ragnheiður Eiríksdóttir / Helgi Björnsson)

Það eru flugur í kringum mig
því ég fer aldrei í bað.
Ætlar þú að faðma mig?
Ég myndi ekki gera það.
Ég vil enga sápu
og sjampó er ógeð,
ef ég kem í heimsókn, þá koma flugur með.

Því ég elska flugur
og ég geri ekki flugu mein.
Ég elska flugur,
ég er bara svo hrifinn af þeim.

Flugur eru gæðablóð
og fallegt er þeirra suð.
Þær búa líka í hárinu á mér,
mér finnst það bara stuð.
Horfum á mýflugumyndir
og borðum kvöldmat saman.
Hlustum svo á Flugufrelsarann.

Því ég elska flugur
og ég geri ekki flugu mein.
Ég elska flugur,
ég er bara svo hrifinn af þeim.

Því ég elska flugur
og ég geri ekki flugu mein
Ég elska flugur,
ég er bara svo hrifinn af þeim.

[af plötunni Dr. Gunni og vinir hans – Alheimurinn]