Eina sem er eftir

Eina sem er eftir
(Lag / texti: Hafsteinn Þráinsson og Una Torfadóttir / Una Torfadóttir)

Endalaus nóttin,
myrkrið, ég og þú.
Þegar þú spurðir mig
hvað klukkan væri,
vildi ég segja „þú“.

Það er svarið við öllum spurningum.
Helst þegar það á ekki við.

Bráðum mun ég hvorki
kunna á básúnu né að hjóla.
Það eina sem er eftir er að elska þig.
Það kemst ekkert fyrir
inni í hausnum á mér núna.
Það eina sem er eftir er að elska þig.

Sundurlaus samtöl.
Sólarupprásin.
Þú segist elska hausinn á mér.
Vissirðu að hann er þinn?

Hann er fullur af þér og endalausum
leiðum sem að liggja til þín.

Bráðum mun ég hvorki
kunna á básúnu né að hjóla.
Það eina sem er eftir er að elska þig.
Það kemst ekkert fyrir
inni í hausnum á mér núna.
Það eina sem er eftir er að elska þig.

Viltu leyfa mér að
elska þig eins og þú ert?
Því ég veit það er
það besta sem ég hef gert.
Viltu leyfa mér að
gefa þér allt sem ég á og er?

Bráðum mun ég hvorki
kunna að semja lög né syngja.
Það eina sem er eftir er að elska þig.
Það kemst ekkert fyrir
inni í hausnum á mér núna.
Það eina sem er eftir er að elska þig.

Bráðum mun ég hvorki
kunna á básúnu né að hjóla.
Það eina sem er eftir er að elska þig.
Það kemst ekkert fyrir
inni í hausnum á mér núna.
Það eina sem er eftir er að elska þig.
Það eina sem er eftir er að elska þig.
Það eina sem er eftir er að elska þig.

[af plötunni Una Torfa – Sundurlaus samtöl]