Engey og Baula
(Lag og texti: Gunnar L. Hjálmarsson)
Sé þig næstum daglega,
lokkandi og marflata,
alltaf utan seilingar,
vildi ég kynni siglingar.
Engey!
Engey!
Ég fór aldrei upp á þig.
Baulitið reið mér á slig,
lagðist bara í mosabing
og átti stund með dingaling.
Baula!
Baula!
1500 metra löng,
400 breið,
Valdimar og Alla bjuggu síðast á þér.
Næstum kílómetra há,
gerð úr líparíti
upp á þér er tjörn með óskasteini.
La la la la…
[af plötunni Dr. Gunni – Nei, ókei]














































