Fingur
(Lag / texti: Vignir Snær Vigfússon / Vignir Snær Vigfússon og Birgitta Haukdal)
Ánetjast því
að fá allt upp í hendurnar á mér,
sú tilfinning
að fá að snerta‘ og þreifa allt um kring
og finna.
Því að ég hef fingur
sem vilja snerta
þessa mjúku sál,
þetta‘ er fíkn og tál.
Ég vil annan,
ég vil fleiri,
fleiri skammta‘ af þér
og því meir þú gefur mér.
Svo finn ég þig,
öll mín orka beinist nú að þér.
Ég veit ég vil
fá að snerta‘ og þreifa fyrir mér og finna.
Því að ég hef fingur
sem vilja snerta
þessa mjúku sál,
þetta‘ er fíkn og tál.
Ég vil annan,
ég vil fleiri,
fleiri skammta‘ af þér
og því meir þú gefur mér.
Ég vil komast alla leið,
ég vil komast af.
Með þér bíður leiðin greið,
ég vil komast af.
Sóló
Því að ég hef fingur
sem vilja snerta
þessa mjúku sál,
þetta‘ er fíkn og tál.
Ég vil annan,
ég vil fleiri,
fleiri skammta‘ af þér
og því meir þú gefur mér.
[m.a. á plötunni Írafár – Allt sem ég sé]














































