Flækt og týnd og einmana

Flækt og týnd og einmana
(Lag og texti: Una Torfadóttir)

Seg mér hvernig ég
virðist fyrir þér
flækt og týnd og einmana,
tek það ekki nærri mér.

Eða hefur mér tekist að
sannfæra þig um það
að ég sé laus við öll
vandamál sem algengt er að hrjái unglinga?

Það er ekki mér að kenna ef þú heldur að ég sé með
front þegar ég er með þér.
Ég hef aldrei þóst geta verið neitt annað
en nákvæmlega það sem ég er.

Búðu þig undir
að ég opni mig
því þú færð heila ævisögu
og miklu meira til.

Ég er með allskonar pælingar,
frumlegar, fyndnar, grafalvarlegar um öll
vandamál sem algengt er að hrjái unglinga.

Og það er ekkert skrítið að mig langi að tala lengi og
deila þeim mеð þér
því ég er nokkuð viss um að þér finnist þær góðar
ef þú hlustar nógu vel.
Þér dettur pottþétt allskonar í hug sеm þú bætir síðan við
sem ég skil og tileinka mér.

Spjöllum fram á kvöld.
Þú segir að höndin mín sé köld.
Orðin þín svo hlý og mjúk, þau
taka af mér öll völd.

Þér hefur einhvernveginn tek-
Ist að sannfæra mig um að þú sért laus við
vandamál sem algengt er að hrjái unglinga.

Það er kannski ekki sniðugt að við höldum þessu áfram
og hunsum gallana.
En mér finnst ekkert sniðugt heldur að hunsa’ allt sem er gott,
að refsa sér fyrir það.
Að finnast bara gaman að spjalla og hætta svo að spjalla’
og gera allskonar annað
því það er bara akkúrat það sem við gerum nú öll ef við
leyfum okkkur það.

Eigum við ekki bara að
hætta að hugsa og
sætta okkur við þessi
vandamál sem algengt er að hrjái unglinga.
Er ekki orðið augljóst að
við eigum séns og við
gætum náð saman.
Þó við séum bæði flækt og týnd og einmana.
Þó við séum bæði flækt og týnd og einmana.
Þó við séum bæði flækt og týnd og einmana.

[af smáskífunni Una Torfa – Flækt og týnd og einmana]