Glæpur gegn ríkinu
(Lag og texti: Gunnar L. Hjálmarsson)
Skríða yfir annað lík,
ég man eftir því, ég man eftir því,
hún tók ofan svínsfésið,
ég man eftir því, ég man eftir því,
beið fyrir utan
hergagnaverksmiðjuna
allan daginn.
Þessi bið hún virkar þreytandi,
ég man eftir því, ég man eftir því
svo ég ákvað bara að hringja í þig,
ég man eftir því, ég man eftir því,
þú varst auðvitað ekki heima,
búin‘ að liggja‘ í feninu í 17 ár.
Kona forstjórans er ljót,
hún lifir á kók og konfekti,
ég fyllist klígju og ógeði
þegar ég tek hana í kompunni,
beið eins og hundur
við skrifstofudyrnar allan daginn.
Hún er glæpur gegn ríkinu
og glæpur gegn mér…
Fimmtíu stunda vinnuvika
á bakinu í hálfa öld,
vakna snemma alla morgna,
sturtan er alltaf köld.
Þetta er ekki djók
og ef þetta væri djók
þá væri‘ þetta ekkert fyndið djók,
fimmtíu stunda vinnuviku,
milljón stunda vinnulíf.
Hún er glæpur gegn ríkinu
og glæpur gegn mér…
[m.a. á plötunni S.h. draumur – Goð]














































