Haltu fast í höndina á mér (Þjóðhátíðarlag 2015)
(Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Stefán Hilmarsson)
Úr Ægi köldum
eyland í suðri rís og góður er byr.
Á ölduföldum
í ágúst byrjun þangað siglum sem fyrr.
Þar söngvar óma
í sæludalnum og í sálinni á mér
og augu ljóma
því æði margir finna ástina hér.
Má ég kíkja í tjaldið hjá þér?
Við elskum lífið þessar ljúfu nætur,
þá logar lýsa upp ævintýraheim.
Hér rætast draumar ef að líkum lætur.
Haltu fast í höndina á mér.
Haltu fast í höndina á mér.
Svo kemur dagur
og kannski sólin kyssi okkur um stund.
Hve hann er fagur
hamarinn hái sem við liggjum hér und.
En tíminn flýgur,
sjá fyrr en varir fölna urtir og láð.
Sumarið líður
svo fljótt en varla mér úr minni í bráð.
Tökum síðar upp þennan þráð.
Við elskum lífið þessar ljúfu nætur,
þá logar lýsa upp ævintýraheim.
Hér rætast draumar ef að líkum lætur.
Haltu fast í höndina á mér.
Haltu fast í höndina á mér.
Elskum lífið þessar ljúfu nætur,
þá logar lýsa upp ævintýraheim.
Hér rætast draumar ef að líkum lætur.
Haltu fast í höndina á mér.
Haltu fast í höndina á mér.
Já, haltu fast í höndina á mér þessa nótt.
Nanana…
Þessa nótt.
Nanana…
Og líka næstu nótt.
Nanana…
Ég vil ekki missa af þér.
Nanana…
[af smáskífunni Sálin hans Jóns míns – Haltu fast í höndina á mér]














































