Hátíð í Herjólfsdal (Þjóðhátíðarlag 1982)

Hátíð í Herjólfsdal (Þjóðhátíðarlag 1982)
(Lag / texti: Sigurjón Ingólfsson / Snorri Jónsson)

Höldum hátíð í Herjólfsdal
þeim hrífandi fjallasal,
er geymir vor ljúfustu leyndarmál
og lifir fagur í vorri sál.

Myndin sem mest á ber
og meitluð í hjartað er,
sýnir húmið létt, læðast um hlíðar og dal,
sig hjúfrar að meyju og hal.

Hvar sem er, hvar sem Eyjamaður fer,
þá á dalurinn hluta í hjarta hans,
honum hlýnar þegar hann minnist hans.

Hann dreymir um hátíð í Herjólfsdal,
þeim hrífandi fjallasal,
er geymir hans ljúfustu leyndarmál
og lifir fagur í hans sál.

Hvar sem er, hvar sem Eyjamaður fer,
þá á dalurinn hluta í hjarta hans,
honum hlýnar þegar hann minnist hans.

Höldum hátíð í Herjólfsdal
þeim hrífandi fjallasal,
er geymir vor ljúfustu leyndarmál
og lifir fagur í vorri sál.

Hvar sem er, hvar sem Eyjamaður fer,
þá á dalurinn hluta í hjarta hans,
honum hlýnar þegar hann minnist hans.

Þá á dalurinn hluta í hjarta hans,
honum hlýnar þegar hann minnist hans.

Þá á dalurinn hluta í hjarta hans,
honum hlýnar þegar hann minnist hans.

[af plötunni Móberg – Nornanótt]