Herjólfsdalur 1977 (Þjóðhátíðarlag 1977b)
(Lag og texti: Ástgeir Ólafsson (Ási í Bæ))
Herjólfsdalur, orðinn eins og nýr,
svo yndislega grænn sem fyrr á dögum.
Herjólfsdalur, öll þau ævintýr
sem áttum við í þínum sumarhögum.
Þau gleymast ei, en geymast hverjum þeim
sem gleðistundir þínar meta kunni.
Í faðmi þér, mér finnst ég kominn heim,
og fagna því af innsta hjartans grunni.
Hér gleðjast allir, takast hönd í hönd
með hýrri brá því það er gamall siður
að láta dægurþrasið lönd og strönd,
við leggjumst bara í grasið mjúka niður.
Og njótum þess að vaka og vera til,
í vinahópi, gista klettasalinn,
á meðan sólin gyllir þessi þil
og þjóðhátíðarstemmning fyllir Dalinn.
Og blærinn hvíslar orði í eyra mér
sem álfar snerti tregans djúpu strengi,
við minnumst þeirra er fyrrum fóru hér
og fögnuði með okkur nætur lengi.
En þegar rökkvar, leikinn æskan á
og ævintýrin nýjum perlum skarta,
því hér er ekkert til sem mær ei má
ef maður elskar hana af hreinu hjarta.
[af plötunni Ási í Bæ – Undrahatturinn]














































