Hve dátt er hér í Dalnum (Þjóðhátíðarlag 1950a)

Hve dátt er hér í Dalnum (Þjóðhátíðarlag 1950a)
(Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Ási í Bæ (Ástgeir Ólafsson)

Hve dátt er hér í Dalnum inni,
er dagur lýkur göngu sinni
og rökkrið hylur rósavanga,
ó, rómantískt er hér að ganga
um götur þær er gekk ég forðum
og gladdi þig með ástarorðum.

Þá kveikir Siggi kyndla sína
í kynjabirtu fjöllin skína!
Á bálið vörpum sorg og sút,
syngjum meðan brennur
­dönsum villt og drekkum út,
dagur þar til rennur.

Hve dátt er hér í dalnum inni,
er dagur lýkur göngu sinni ­
og þegar ljómar bálið bjarta,
þá birtir yfir hverju hjarta.

[engar upplýsingar um lagið á plötum]