Í Herjólfsdal (Þjóðhátíðarlag 1985)
(Lag / texti: Lýður Ægisson / Guðjón Weihe)
Í Herjólfsdal vil ég vera,
vaka þar kvöldin löng.
Ævintýrin bjarmar bera,
brekkurnar óma af söng.
Í Herjólfsdal vil ég vera,
vaka þar kvöldin löng.
Ævintýrin bjarmar bera,
brekkurnar óma af söng.
Mig heilla dalsins hlýju ágústnætur
við húmsins skýru ævintýrarún.
Logar bálið, lýsir klettarætur,
leiðist æskan fram með tjarnarbrún.
Hér finn ég líf og leik í skjóli fjalla
og líta yfir ævi farinn veg.
Ef að ég mætti öll þau afturkalla
árin sem að liðu á hulduveg.
Í Herjólfsdal vil ég vera,
vaka þar kvöldin löng.
Ævintýrin bjarmar bera,
brekkurnar óma af söng.
Í Herjólfsdal vil ég vera,
vaka þar kvöldin löng.
Ævintýrin bjarmar bera,
brekkurnar óma af söng.
Sóló
Hvað er fegra en dalsins frjálsu stundir,
fannhvít tjöld og bál í klettasal.
Fagra söngva fjöllin taka undir,
friður ríkir inn í Herjólfsdal.
Hér vil ég líf og leik í skjóli fjalla
og líta yfir ævi farinn veg.
Ef að ég mætti öll þau afturkalla
árin sem að liðu á hulduveg.
Í Herjólfsdal vil ég vera,
vaka þar kvöldin löng.
Ævintýrin bjarmar bera,
brekkurnar óma af söng.
Í Herjólfsdal vil ég vera,
vaka þar kvöldin löng.
Ævintýrin bjarmar bera,
brekkurnar óma af söng.
Brekkurnar óma af söng.
Brekkurnar óma af söng.
[af smáskífunni Rafn Sigurbjörnsson – Í skjóli fjalla]