Í Herjólfsdal (Þjóðhátíðarlag 2004)

Í Herjólfsdal (Þjóðhátiðarlag 2004)
(Lag / texti: Helgi Tórshamar / Helgi Tórshamar og Jórunn Emilsdóttir Tórshamar)

Um fagra jörð stígur rómantík í fagran dans
nú þegar tjaldborg hefur verið reist á grænni grund.
Lundi stendur vörð og starir til andans
meðan þú gleðst með góðum vinum á góðri stund.

Ljúft andartak hér
varðveitir leyndarmál með þér
þegar tunglsljósið logar í hamrasal.
Hver ein dýrmæt stund
dregur með sér ástarfund,
ágústnótt í Herjólfsdal.

Á Fjósaklett bjarmi lýsir upp helgan reit
sem vekur upp yl og hjartaþel
og yfir þann blett, varðveitist minningin svo heit
sem við þekkjum svo vel, þú og ég.

Ljúft andartak hér
varðveitir leyndarmál með þér
þegar tunglsljósið logar í hamrasal.
Hver ein dýrmæt stund
dregur með sér ástarfund,
ágústnótt í Herjólfsdal.

Heim úr Dalnum hömrum girta,
hljóðlát leiðast sveinn og mey.
Allar góðar vættir verndi
og vaki yfir Heimaey.

Sólo

Ljúft andartak hér
varðveitir leyndarmál með þér
þegar tunglsljósið logar í hamrasal.
Hver ein dýrmæt stund
dregur með sér ástarfund,
ágústnótt í Herjólfsdal.

Ljúft andartak hér
varðveitir leyndarmál með þér
þegar tunglsljósið logar í hamrasal.
Hver ein dýrmæt stund
dregur með sér ástarfund,
ágústnótt í Herjólfsdal.

[af plötunni Í brekkunni – ýmsir]