Jörundarhylling
(Lag / texti: erlent lag / Jónas Árnason)
Hér er hafsins hraustur son,
hér er hetja og eina von
þessa kalda lands og kóngur maxímús!
Því skal syngja og dansa dátt,
láta dynja bumbur hátt.
Viðlag
Bræður, barmafyllum hverja krús, krús, krús!
Látum mjöðinn fylla hverja krús!
Ó, mín litla ljúfa,
lokkaprúða dúfa,
má ég ekki bjóða þér að drekka dús,
í einrúmi og drekka dús?
Ber þú, vindur, út mitt orð
vítt um Íslands bláu storð
í hvert sveitakot og sjómanns fátækt hús.
Segðu að björt og betri tíð
sé nú boðuð öllum lýð.
Viðlag
Nú skal stríðið heilagt háð
um hið hrjáða Ísaláð;
gengur hetja hver til hildar glöð og fús
meðan gauðin Guði á vald
fara grátt í brókarhald.
Viðlag
Sé ég griðung hátt á hól
reisa horn mót árdagssól;
útí haga svefninn losar lítil mús.
Hvítur fugl á fólgið egg
undir frelsis grænum hegg.
Viðlag
[engar upplýsingar um lagið á plötum]














































