Kútter Sigurfari

Kútter Sigurfari
(Lag / texti: erlent lag / Jónas Árnason)

Þótt ég sestur nú
sé í helgan stein
og minn stakk ég hafi hengt á snaga
ennþá man ég glöggt
árin sem ég var á
kútter Sigurfara forðum daga.

Úrvals kappasveit
á því skipi var;
karlar þessi kunnu fisk að draga.
Enginn skóli bauðst
ungum manni betri en
kútter Sigurfari forðum daga.

Þessi kappasveit,
þetta frækna lið
kunni líka voðum vel að haga.
Sigldi skipa hæst,
sigldi skipa glæstast
kútter Sigurfari forðum daga.

Lagst var miðin á
landið allt um kring;
undir Jökli, útaf Gerpi og Skaga.
Of þá dreginn var
afli býsna vænn á
kútter Sigurfara forðum daga.

Gegnum veðrafár,
gegnum manndrápssjó
alltaf slapp hann – það var segin saga.
Ekkert vissu menn
annað eins happaskip og
kútter Sigurfara forðum daga.

Dátt var hlegið oft,
dátt var sungið oft,
mörg var líka kveðin kátleg baga
þegar haldið var
heim úr góðri ferð á
kútter Sigurfara forðum daga.

Þó ég sestur nú
sé í helgan stein
og minn stakk ég hafi hengt á snaga
ennþá man ég glöggt
árin sem ég var á
kútter Sigurfara forðum daga.
 
[m.a. á plötunni Þrjú á palli – Lífið er lotterí]