La Dolce Vita (Þjóðhátíðarlag 2011)

La Dolce vita (Þjóðhátíðarlag 2011)
(Lag / texti: Trausti Haraldsson / Páll Óskar Hjálmtýsson)

Nú er ég búinn að gera mig sætan,
sjóðheitur ég verð að mæta’ og upplifa
La Dolce Vita.
Nú er ég búinn að reima skóna,
til að dansa’ í nótt við töfratóna í
La Dolce vita.

Aha ég segi það satt,
hef unnið of mikið svo ég á það skilið
að gleyma mér aðeins
og bilast í friði með bjútifúl liði.

En röðin er löng
og Dalurinn hlaðinn ég mæti á staðinn
því þegar ég dansa
er eins og ég svífi – ég er á lífi.

Nú er ég búinn að gera mig sætan,
sjóðheitur ég verð að mæta’ og upplifa
La Dolce Vita.
Nú er ég búinn að reima skóna,
til að dansa’ í nótt við töfratóna í
La Dolce vita.

Svo hvað viltu sjá?
Og hvað viltu heyra? Má bjóða þér meira?
Að standa og þegja
er ömurleg iðja, þú þarft að biðja.

Ég veit hvað ég vil
og næ líka í það ég nenn’ ekki að bíða,
í dag vil ég dansa
og nú kemur bassinn, hristi’ á mér rassinn.

Nú er ég búinn að gera mig sætan,
sjóðheitur ég verð að mæta’ og upplifa
La Dolce Vita.
Nú er ég búinn að reima skóna,
til að dansa’ í nótt við töfratóna í
La Dolce vita.

Trúa, treysta,
bara’ á það besta.
Trúa, treysta,
bara’ á það besta.

Nú er ég búinn að gera mig sætan,
sjóðheitur ég verð að mæta’ og upplifa
La Dolce Vita.
Nú er ég búinn að reima skóna,
til að dansa’ í nótt við töfratóna í
La Dolce vita.

Nú er ég búinn að gera mig sætan,
sjóðheitur ég verð að mæta’ og upplifa
La Dolce Vita.
Nú er ég búinn að reima skóna,
til að dansa’ í nótt við töfratóna í
La Dolce vita.

[m.a. á plötunni Páll Óskar – Allt fyrir ástina]