Lygi

Lygi
(Lag / texti: Vignir Snær Vigfússon / Birgitta Haukdal)

Ég reyndi að segja svo margt
en ég fann bara engin orð.
Ég reyndi að segja þér allt
en ég fann bara engin orð.

Stór lygi, lítil
hvort sem er.
Mér finnst það skrýtið
að ljúga að þér
því mér líður vel
í lokaðri skel
en hvernig líður þér?

Í sannleikanum fann ég trú
en það hentar ekki mér.
Á sannleikann trúir þú
en hann hentar ekki mér.

Stór lygi, lítil
hvort sem er.
Mér finnst það skrýtið
að ljúga að þér
því mér líður vel
í lokaðri skel
en hvernig líður þér?

Ég finn til.
Sálin mín, hún deyr.
Sektarkennd, ég hverf á braut.

Stór lygi, lítil
hvort sem er.
Mér finnst það skrýtið
að ljúga að þér
því mér líður vel
í lokaðri skel
en hvernig líður þér?

[af plötunni Írafár – Allt sem ég sé]