Metta mittisnetta
(Lag / texti: erlent lag / Jónas Árnason)
Ég hugsa oft á kvöldin um löngu liðna tíð
um sumarnætur bjartar á Sigló fyrir stríð
þegar hún Me-Metta
mittisnetta
steig við piltana
polkadansinn létta.
Ég læddist meðfram veggjum og lítið á mér bar
því feiminn mjög og ungur og óreyndur ég var
þegar hún…
Ég heyrði að væri suðrænt og sjóðheitt hennar blóð
og eins og töfrum sleginn á öndinni ég stóð
þegar hún…
Í rauðu pilsi var hún með röndum fjólublám;
það sviptist oft og lyftist alveg upp að hnjám
þegar hún…
Og undir hvítri blússu reis barmur hennar stór;
og undarlegur straumur um æðar mínar fór
þegar hún…
Og eitt sinn varð mér litið í augu hennar dökk;
og hjartað í mér barðist og hoppaði og stökk
þegar hún…
Nú styttist hjá mér ævin og ellinnar ég bíð
og hugsa oft á kvöldin um löngu liðna tíð
þegar hún…
[m.a. á plötunni Þrjú á palli – Tekið í blökkina]














































