Mjöll á furugrein
(Lag / texti: erlent lag / Jónas Árnason)
Þar sem áður við sátum saman
í sólar mildum yl
föl af trjánum nú falla blöðin
í fljótsins kalda hyl.
Nöktum fótum til fundar við þig
ég fór um grænan svörð
þar sem grúfir nú grámi haustins
og gnestur frost í jörð.
Ást þín var mínu unga hjarta
eins og blátær lind
þar sem á náttmálum þorsta svalar
hin þreytta skógarhind.
Um þig geymist í muna mínum
minning björt og hrein
eins og merli í mánaskini
mjöll á furugrein.
[m.a. á plötunni Þrjú á palli – Þrjú á palli]














































