Og þá stundi Mundi
(Lag / texti: erlent lag / Jónas Árnason)
Hann Mundi á sjóinn í fyrsta sinn fór
á fjórtánda árinu, lítill og mjór.
Og það sem hann dró hirti húsbóndi hans
og hét því að koma honum þannig til manns.
Viðlag
Og þá stundi Mundi:
„Þetta er nóg! Þetta er nóg!
Ég þoli ekki lengur að þvælast á sjó.“
Hjá Munda var lítið um leik eða hvíld.
Hann lenti eftir fermingu norður á síld
og síðan á línu og síðan á net
og síðan á línu og aftur á net.
Viðlag
Og æska hans leið og hann vann og hann vann
því vinnan hún „göfgar og bætir hvern mann.“.
En lítið var það sem úr býtum hann bar
því bláblönk að jafnaði útgerðin var.
Viðlag
Hann varð að því hokinn, hann varð af því grár
að velkjast á togurum þrjátíu ár.
Í stórsjó og ágjöf hann stóð sína plikt
með sting fyrir brjósti og króníska gigt.
Viðlag
Í hífingu eitt sinn hann hentist á vír
og hurfu þar fingur hans tveir eða þrír.
Í annað sinn bobbing hann oná sig fékk
og eftir það haltur og skakkur hann gekk.
Viðlag
Til fimmtugs hann þraukaði en þá fékk hann slag
og það gerðist einmitt á sjómannadag.
Og sungið var þá eins og sungið er enn
um særokna, vindbarða Hrafnistumenn.
Viðlag
[m.a. á plötunni Papar og gestir – Riggarobb: tónlistarveisla til heiðurs Jónasi Árnasyni]














































