Prumpufólkið

Prumpufólkið
(Lag / texti: Gunnar L. Hjálmarsson / Jón Gnarr)

Í Vesturbænum býr skrítinn karl
og jafnvel furðulegri er konan hans.
Hann er með rosalega bumbu,
út á götu þau tvö stíga trylltan dans.
Þau skreyttu jólatré í júní
og karlinn sagðist vera kind,
þau stóðu á höndum út á túni
og fóru bæði að leysa vind.

Og karlinn prumpar svona…
Og konan prumpar svona…
Og krakkarnir prumpa með…
La la la la la la la…

Og fullorðna fólkið það varð brjálað
og skammaði börnin sín:
Það er dónaskapur að prumpa,
já, það er sko alls ekkert grín!
Og Herra Rokk kom labbandi
og spurði: Hvað þykist þið geta?
Ég er í svaka stuði
og ég kann sko að freta!

Og Hr. Rokk prumpar svona…
Og karlinn prumpar svona…
Og konan prumpar svona…
Og krakkarnir prumpa með…
La la la la la la la…

Og nú kemur fólk frá útlöndum
frá Hong Kong og París og Kúala Lúmp,
það kemur alla leið til Íslands
til þess eins að heyra alvöru prump.

Og karlinn prumpar svona…
Og konan prumpar svona…
Og Hr. Rokk prumpar svona…
Og krakkarnir prumpa svona…
Og túristarnir prumpa svona…
en fullorðna fólkið bara prumpar ekki neitt.
La la la la la la la..

[af plötunni Dr. Gunni og vinir hans syngja og leika fyrir börnin – úr leikriti]