Riggarobb
(Lag / texti: erlent lag / Jónas Árnason)
Viðlag
Túra-lúra-ligga-lobb!
Ja – þvílíkt og annað eins riggarobb
er ég fór á sjó með Sigga Nobb
og Sigga Jóns og Steina!
Viðlag
Genginn var á Gerpisflak
sprotafiskur með sporðablak
og okkur langaði útá skak;
ekki er því að leyna.
Viðlag
Ég segi alveg satt frá því
að komist við höfðum aldrei í
annað eins feikna fiskerí;
frá því nú skal greina.
Viðlag
Hann stökk á krókana rið á rið
og gaf okkur aldrei grunnmálið.
Já, handóður, bandóður var hann við
og veitti ekki miskunn neina.
Viðlag
Í hverjum drætti strollan stóð
og vaðbeygjur sungu af vígamóð
og seinast var skiphöfnin orðin óð;
ekki er því að leyna.
Viðlag
Lestin var full og lúkarinn
og býsna siginn var báturinn
þegar við héldum aftur inn;
ekki er því að leyna.
Viðlag
Hann gerði hvassa austanátt
og þá var öldunum dillað dátt
og uppi þær höfðu gaman grátt
og gáfu ekki miskunn neina.
Viðlag
En þetta fór þó þannig að
við náðum landi í Neskaupstað.
En slembilukka þótti það;
því er ekki að leyna.
Viðlag
Menn gláptu á okkur gáttaðir;
þeir höfðu ekki séð slíka hleðslu fyrr.
Að við værum allir vitlausir
vildu sumir meina.
Viðlag
[m.a. á plötunni Papar og gestir – Riggarobb: tónlistarveisla til heiðurs Jónasi Árnasyni]














































