Snjór
(Lag og texti: Gunnar L. Hjálmarsson)
Það er sjónvarp í húsinu,
blár skuggi sem færist yfir andlitin
á okkur sem sitjum í stofunni,
snjórinn fellur úr heiðskýru loftinu.
Komdu inn og lokaðu á eftir þér.
Það er útvarp í húsinu,
grænn skuggi sem færist yfir andlitin,
ryksugan malar í horninu,
snjórinn fellur úr heiðskíru loftinu.
Það er kona sem horfir á,
blístrar lágt, heimurinn hlustar á,
tveir menn sitja, klípa og þukla á
snjórinn fellur úr heiðskíru loftinu.
[m.a. á plötunni S.h. draumur – Goð+]














































