Sumardans

Sumardans
(Lag / texti: Óðinn G. Þórarinsson / Stefán Bragason)

Þegar sáttur lít til yngri ára
upp þá rifjast fjölmörg gleðistund.
Tilverunni réðu töfrar dægurlags,
tónanna naut á alla lund.

Þá var lífið dans og söngur dægrin löng
dásamlegt að vera til.
Eitt lítið dægurlag sem lifir enn í dag,
lykill var að ævigöngu minni.

Sæl var hún þessi sumartíð
sérhver stiginn dans.
Ennþá lifa brosin blíð
frá blómarós í meyjarfans.

[m.a. á plötunni Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar – Þá og nú: Lög Óðins G. Þórarinssonar]